Komið sæl
Nú í haust prjónaði ég þessa yndislegu peysu á yndislegu dóttur mína.
Ég er gjörsamlega ástfangin af litnum sem ég notaði en það er léttlopi nr. 0086 frá Ístex og heitir því skemmtilega nafni ljósljósmórauður.
Uppskriftin mun koma í sölu von bráðar og leita ég því eftir áhugasömum og fljótprjónandi sjálfboðaliðum til villuprófa uppskriftina fyrir mig. Þeir myndu fá uppskriftina að sjálfsögðu fría að launum :)
Einnig leita ég að tillögum að nafni fyrir peysuna :)
Áhugasamir sendið mér póst á steinunnbirna@gmail.com.
Hér eru myndir af gullinu mínu í peysunni sem teknar voru í Reykjaréttum síðastliðinn september:
